Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka ákvarðanir um leiðakerfið í samráði við Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Við uppbyggingu leiðakerfis Strætó er leitast við að nýta fjármagn á sem hagkvæmastan hátt þannig að það nýtist sem flestum.
Leiðakerfi Strætó samanstendur af 29 leiðum á höfuðborgarsvæðinu og að jafnaði 25 leiðum á landsbyggðinni. Vegagerðin sér um rekstur hjá Strætó á landsbyggðinni.
Leiðakort
Tíðni
Á höfuðborgarsvæðinu aka leiðir 1, 3, 5, 6 og 12 á 10 mínútna tíðni á annatíma, 15 mínútna tíðni á milli annatíma á virkum dögum og 30 mínútna tíðni þar fyrir utan. Aðrar leiðir eru flestar á 15 mínútna tíðni á annatíma og 30 mínútna tíðni þar fyrir utan.
Vagnarnir aka að jafnaði frá ca. kl. 6:30 á morgnana virka daga, frá ca. kl. 7:30 laugardaga og frá ca. kl. 9:30 sunnudaga. Flestir vagnar aka alla daga vikunnar og klára akstur milli kl. 23:30 og 01:00.
Á rauðum dögum er venjulega ekið eins og á sunnudegi á höfuðborgarsvæðinu.
Á aðfangadag og gamlársdag er ekið skv. laugardagsáætlun og er akstur þangað til um kl. 15. Á höfuðborgarsvæðinu er ekið á jóladag og nýársdag eins og á sunnudegi en á landsbyggðinni er enginn akstur á jóladag og nýársdag.
Skiptistöðvar
Á höfuðborgarsvæðinu eru nokkrar skiptistöðvar:
- Fjörður
- Ásgarður
- Hamraborg
- Mjódd
- Ártún
- Spöngin
- Háholt
Mjóddin er helsta skiptistöð milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Á landsbyggðinni eru skipulagðar tengingar milli leiða m.a. á Selfossi og í Borgarnesi.