Við viljum vekja athygli á því að nokkrir óprúttnir aðilar hafa sett í gang herferðir á samfélagsmiðlum sem eru ekki á vegum Strætó. Þykjast þeir gefa kort  á mjög vægu verði í Strætó til viðskiptavina.

Strætó biður aldrei um fullar kortaupplýsingar og viljum vara við að ýta ekki á neina hlekki sem koma ekki frá okkur. Allir póstar frá okkur koma frá okkar eigin Facebook síðu.