Breytt leiðakerfi á menningarnótt
Almennt fargjald gildir yfir daginn – aukin tíðni verður hjá Strætó yfir daginn
Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag. Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturgjald í næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.
Leið 1:
- mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10
- mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leið 6
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15:
- munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18
- munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Hægt er að sjá biðstöðvar sem stoppað verður á í tímatöflu allra leiða undir 24. ágúst.
Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð, áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Búið er að uppfæra leiðavísinn eftir bestu getu og hægt er að skoða tímatöflur allra leiða fyrir daginn en þar sem lokanir eru víðsvegar um borgina getur verið að vagninn þurfi að aka óhefðbundna leið – Vinsamlegast fylgist því með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru.
Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með:
- Klappinu appi í síma
- Áfyllanlegu Klapp korti
- Klapp tíu
- Reiðufé – vagnstjórar á höfuðborgarsvæðinu gefa ekki til baka
Nánari upplýsingar á Klappid.is
Hátíðarkort 2024
Leiðakerfi rofið kl. 22:30
Kl. 22:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut.
Það kostar ekkert í þessar ferðir.
Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu:
1 | Kl. 22:23 frá Skúlagötu | Kl. 22:19 frá Skarðshlíð. |
2 | Kl. 21:51 frá Skúlagötu | Kl. 22:22 frá Mjódd |
3 | Kl. 21:55 frá Granda | Kl. 22:21 frá Mjódd |
4 | Kl. 22:15 frá Skúlagötu | Kl. 22:21 frá Mjódd |
5 | Kl. 22:05 frá HR | Kl. 22:18 frá Norðlingaholti |
6 | Kl. 22:17 frá HÍ | Kl. 22:18 frá Egilshöll |
11 | Kl. 22:22 frá Mjódd | Kl. 22:27 frá Eiðistorgi |
12 | Kl. 22:20 frá Skerjafirði | Kl. 22:07 frá Ártúni |
13 | Kl. 22:10 frá Sléttuvegi | Kl. 22:08 frá Öldugranda |
14 | Kl. 22:29 frá Granda | Kl. 22:10 frá Verzló |
15 | Kl. 22:15 frá Reykjavegi | Kl. 22:01 frá Flyðrugranda |
18 | Kl. 22:06 frá Spöng | Kl. 22:14 frá Skúlagötu |
19 | Kl. 22:18 frá Kaplakrika | Kl. 22:22 frá Ásvallalaug |
24 | Kl. 22:19 frá Spöng | Kl. 22:03 frá Ásgarði |
35 | Kl. 22:07 frá Hamraborg |
Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum sem eru í pöntunarþjónustu. Þetta eru leiðir 22, 23, 25, 26 og 27.