Starfsmenn Strætó gefa erlenda mynt til Vildarbarna Icelandair.
Í dag afhentu starfsmenn Strætó Vildarbörnum Icelandair erlenda mynt sem safnast hafði saman í strætisvögnum höfuðborgarsvæðisins yfir nokkurra ára tímabil.
Vildarbörn Icelandair er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður og er markmiðið að gefa börnum á Íslandi og í nágrannalöndunum tækifæri til ferðalaga ásamt fjölskyldum sínum.
Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna tók við myntinni fyrir hönd ferðasjóðs Vildarbarna en það voru Sigríður Harðardóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs Strætó og Elísa Kristmannsdóttir, fjármálastjóri Strætó sem komu með myntina færandi hendi fyrir hönd Strætós.
Í tilefni dagsins sagði Sigríður að það væri afar ánægjulegt að gefa í svona verðugt málefni og efast ekki um að Vildarbörn og fjölskyldur þeirra muni njóta góðs af.
