Fréttir
20. des. 2024

Stefnt að innheimtu fargjaldaálags á nýju ári

Í byrjun árs 2025 stefnir Strætó að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem ekki geta sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit. Er þetta byggt á lögum nr. 28/2017 og reglugerð nr. 1021/2023. Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag.

Eftirlitsmenn hafa verið um borð í vögnum í mörg ár og verður þetta nú eitt af þeirra verkefnum. Ávallt hefur verið heimilt að vísa fólki úr vögnum hafi það ekki greitt rétt fargjald en nú bætist við að það sé hægt að innheimta fargjaldaálag af þeim sem geta ekki sýnt rétt fargjald við eftirlit. Álagið er innheimt í heimabanka eða greitt á staðnum eftir því sem við á

Álaginu er m.a. ætlað að minnka svindl um borð í vögnum og að fólk ferðist um miðalaust eða á röngu fargjaldi og greiði þ.a.l. ekki til almenningssamgangna.

Fargjaldaálaginu er þannig ætlað að tryggja jafnræði og sanngirni í almenningssamgöngum. Með því að tryggja að allir farþegar greiði rétt fargjald er hægt að viðhalda góðri þjónustu og koma í veg fyrir að aukakostnaður vegna svindls bitni á öðrum farþegum.

Hvað er fargjaldaálagið hátt?

Almennt: 15.000 kr.

Ungmenni: 7.500 kr.

Aldraðir: 7.500 kr.

Öryrkjar: 4.500 kr.

Frekari upplýsingar um fargjaldaálag má sjá hér.