Fréttir
27. sept. 2023

Næturstrætó til Hafnarfjarðar á nýjan leik

Næturstrætó mun hefja akstur til Hafnarfjarðar aðfaranótt laugardags 30. september.

Hafnarfjarðarbær hefur gert samning við Strætó um að hefja akstur næturstrætó til Hafnarfjarðar, um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja mánaða.

Ekin verður leið 101 en með þeim breytingum að einungis verður stoppað í Hamraborg í Kópavogi og Ásgarði í Garðabæ. Einnig lengist leiðin örlítið og síðasta stopp verður Hamranes. Brottfarartímar eru frá Lækjartorgi B kl. 1:20, 2:25 og 3:45.