Fréttir
17. maí 2022

Leiðir 61 og 62 á Vestfjörðum aka í júní, júlí og ágúst

Leiðir 61 og 62 munu aka um Vestfirði í júní, júlí og ágúst.


Leið 61

Leið 61 ekur frá Aðalstræti 7 á Ísafirði, að verslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík og aftur til baka. Viðkomustaðir á leiðinni eru bensínstöð Orkunnar í Súðavík, vegamót Djúpavegar (61) og Mjóafjarðarvegar (633) og Hótel Reykjanes.

Leiðin tengist leið 59 sem ekur milli Hólmavíkur og Borgarness.

Reiðhjól:

Bíllinn á leið 61 getur tekið að mestu lagi 2 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara:

Smáferðir ehf


Leið 62

Leið 62 ekur frá upplýsingamiðstöð Westfjords Adventures (Þórsgötu 8a á Patreksfirði), að Aðalstræti 7 á Ísafirði og til baka. Viðkomustaðir á leið frá Patreksfirði og til Ísafjarðar eru bensínstöð N1 á Patreksfirði, Hótel Flókalundur og Dynjandi.

Viðkomustaðir á leið frá Ísafirði og til Patreksfjarðar eru Þingeyri (622), Dynjandi, Hótel Flókalundur, Brjánslækur og bensínstöð N1 á Patreksfirði.

Reiðhjól:

Bíllinn á leið 62 getur tekið að mestu lagi 3 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara:

Westfjords Adventures


Gjaldskrá á Vestfjörðum

Leið 61
FerðFullorðnirBörn, aldraðir og öryrkjar*
Ísafjörður - Súðavík700 kr. 350 kr.
Ísafjörður - Heydalur3.000 kr.1.500 kr.
Ísafjörður - Reykjanes3.500 kr. 1.750 kr.
Ísafjörður - Hólmavík6.000 kr.2.500 kr.
Hólmavík - Reykjanes1.500 kr. 750 kr.
Hólmavík - Heydalur2.000 kr. 1.000 kr.
Hólmavík - Súðavík5.000 kr. 2.000 kr.
Hólmavík - Ísafjörður6.000 kr. 2.500 kr.
Reiðhjól3.500 kr. 3.500 kr.

*Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar.

Leið 62
FerðFullorðnirBörn, aldraðir og öryrkjar*
Ísafjörður - Brjánslækur8.400 kr.6.300 kr.
Patreksfjörður - Brjánslækur3.000 kr.2.300 kr.
Ísafjörður - Patreksfjörður9.900 kr.7.500 kr.
Ísafjörður - Þingeyri2.000 kr.1.500 kr.
Brjánslækur - Flókalundur500 kr.500 kr.
Reiðhjól3.500 kr.3.500 kr.

*Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar.