Vegna framkvæmda á Laugavegi verða hjáleiðir á leiðum 2, 5, 14, 15, 17 og næturleið 104. Mun þetta gilda frá og með 15. júlí til og með 29. júlí.
Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172 vegna endurnýjunar lagna.
Leiðir 2, 5, 15, 17 og 104
Þessar leiðir munu aka Borgartún og Kringlumýrarbraut í báðar áttir.
Óvirkar biðstöðvar: Þjóðskjalasafnið og Hátún.
Leið 14
Leið 14 mun aka Borgartún í báðar áttir.
Óvirkar biðstöðvar: Þjóðskjalasafnið, Hátún, Teigar og Tún.