Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Nemur hækkunin 3,1% á stökum fargjöldum og 3,7% á tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 650 kr. í 670 kr. og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 5.400 kr. í 5.600 kr. Verð á Klapp plastkortum helst óbreytt eða 1.000 kr.
Strætó mun hætta sölu dagpassa á komandi vikum: 24 klst. og 72 klst. en Kapp greiðsluþak hefur komið í staðinn fyrir þær vörur. Ónotaðir 24 klst. og 72 klst. passar ógildast ekki.
Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu var tekin af stjórn félagsins á fundi þess 13. desember sl. og er í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu þessa árs.
Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni. Ný gjaldskrá tekur gildi miðvikudaginn 8. janúar 2025.
Gjaldskrá Strætó frá 8. janúar 2025
Fullorðnir | 670 kr. |
Ungmenni | 335 kr. |
Aldraðir | 335 kr. |
Öryrkjar* | 200 kr. |
Börn, 11 ára og yngri | 0 kr. |
Næturstrætó - eitt fargjald | 670 kr. |
*Þetta verð er eingöngu í boði í Klapp greiðslukerfinu. Ekki er hægt að greiða öryrkjafargjald með reiðufé.
30 daga | 12 mánaða | |
---|---|---|
Fullorðnir | 11.200 kr. | 112.000 kr. |
Ungmenni | 5.600 kr. | 56.000 kr. |
Aldraðir | 5.600 kr. | 56.000 kr. |
Nemar, 18 ára og eldri | 5.600 kr. | 56.000 kr. |
Öryrkjar | 3.360 kr. | 33.600 kr. |
Klapp tía Fullorðnir | 6.700 kr. |
Klapp tía Aldraðir | 3.350 kr. |
Klapp tía Ungmenni | 3.350 kr. |
Klapp kort | 1.000 kr. |