Þann 1. júlí mun ný gjaldskrá Strætó taka gildi. Nemur hækkunin 3,6% af stökum fargjöldum og 3,3% af tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 550 kr. í 570 kr. og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 4.500 kr. í 4.650 kr.

Samkvæmt gjaldskrárstefnu Strætó er stefnt að endurskoðun gjaldskrár tvisvar á ári en gjaldskráin var síðast hækkuð 1. október 2022. Frá þeim tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og Strætóvísitala um 3,5%. Stjórn Strætó samþykkti því hækkun á gjaldskrá á fundi stjórnar félagsins 19. maí sl.

Markmiðið með gjaldskrárstefnunni var og er að tryggja að gjaldskrá haldist í hendur við rekstrarkostnað Strætó og tekur þannig gjaldskráin breytingum í takt við Strætóvísitölu hverju sinni. Undir Strætóvísitölunni eru laun, olía, nvt, viðhald og viðgerðir (undirvísitala nvt) og varahlutir (undirvísitala nvt).

Gjaldskrárbreyting hjá Vegagerðinni á landsbyggðinni

Samhliða gjaldskrárhækkun Strætó hefur Vegagerðin ákveðið að hækka einnig verð hjá sér. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hækkunin nemi 16,3% og fer stakt fargjald úr 490 kr. í 570 kr. Tímabilskort og nemakort verða þó óbreytt og hækka ekki að sinni. Sem dæmi fer ferð frá Reykjavík til Akureyrar úr 10.780 kr. í 12.540 kr. og ferð frá Reykjavík til Keflavíkur úr 1.960 kr. í 2.280 kr. Hér má sjá tilkynningu Vegagerðarinnar.

Ný gjaldskrá bæði fyrir höfuðborgina og landsbyggðina tekur gildi 1. júlí næstkomandi.

Gjaldskrá Strætó 1. júlí 2023

Stök fargjöld
Fullorðnir570 kr.
Ungmenni285 kr.
Aldraðir285 kr.
Öryrkjar171 kr.
Börn, 11 ára og yngri0 kr.
Tímabilskort
30 daga 12 mánaða
Fullorðnir9.300 kr. 93.000 kr.
Ungmenni4.650 kr. 46.500 kr.
Aldraðir4.650 kr. 46.500 kr.
Nemar, 18 ára og eldri4.650 kr.46.500 kr.
Öryrkjar2.790 kr.27.900 kr.
Börn, 11 ára og yngri0 kr.0 kr.
Klapp tíur
Klapp 10 Fullorðnir5.700 kr.
Klapp 10 Aldraðir2.850 kr.
Klapp 10 Ungmenni2.850 kr.
Plast kort
Klapp kort1.000 kr.
Dagpassar
24 klst.2.300 kr.
72 klst.5.200 kr.