Laugardaginn 7. september munu fleiri vagnar aka á leið 55 í tilefni Ljósanætur í Reykjanesbæ en skv. tímatöflu. Athugið að um aukavagna er að ræða á hefðbundinni tímatöflu á leið í Reykjanesbæ en á leið frá Reykjanesbæ eftir að hátíð lýkur verða aukaferðir í boði utan hefðbundinnar tímatöflu.
Til Reykjanesbæjar
Tveir aukavagnar fara frá Firði í Hafnarfirði á sama tíma og áætlunarvagnar, annar þeirra fer kl.17:53 og hinn kl. 19:53 og endar akstur beggja við Hringbraut/Melteig í Keflavík. Þessir vagnar stoppa á eftirfarandi stoppistöðum: Fjörður – Sveitarfélagið Vogar – Hringbraut/Melteigur.
Frá Reykjanesbæ
Þegar hátíð lýkur verða farnar þrjár aukaferðir frá Hringbraut/Melteig í Keflavík utan tímatöflu, ein kl. 22:45 og tvær kl. 23:15 og endar akstur þeirra vagna við BSÍ. Þessir vagnar stoppa á eftirfarandi stoppistöðum: Hringbraut/Melteigur – Sveitarfélagið Vogar – Fjörður – Ásgarður – Kringlumýrarbraut – Hlíðar – Klambratún – BSÍ.
ATHUGIÐ:
- Aukavagnar verða merktir sem aukavagnar, annaðhvort með ljósaskilti eða með prentuðum texta í framrúðu vagnsins.
- Aukavagnarnir aka ekki á milli Hringbrautar/Melteigs og Keflavíkurflugvallar og öfugt, stoppa hvorki við Grindavíkurafleggjara né Vogaafleggjara og keyra ekki innanbæjar í Reykjanesbæ.
- Aukavagnarnir munu hins vegar aka inn í Voga og stoppa á stoppistöð Sveitarfélagið Vogar eins og leið 87, sjá áætlaðan komutíma:
Brottför frá Firði | Sveitafélagið Vogar |
kl. 17:53 | kl. 18:13* |
kl. 19:53 | kl. 20:13* |
*Áætlaður tími, vagni getur seinkað um 5-10 mínútur því hann ekur á eftir áætlunarvagni.
Brottför frá Hringbraut/Melteigur (söfnunarsvæði aukavagna) | Sveitafélagið Vogar |
kl. 22:45 | kl. 23:10* |
kl. 23:15 | kl. 23:40* |
*Áætlaður tími, vagni getur seinkað. Fer eftir umferð innan Reykjanesbæjar.
Hefðbundin gjaldskrá fyrir landsbyggðina gildir og hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum með greiðslukorti eða pening. Athugið að ekki er hægt að nota Klappið í landsbyggðarvagna.