Hátíðarhöld í kringum Gleðigönguna munu hafa áhrif á strætóleiðir sem aka um Lækjargötu og Fríkirkjuveg á laugardaginn 10. ágúst milli kl. 07:00-18:00.


Allar hjáleiðir munu birtast í Klappinu og á straeto.is

 

Gleðigangan

Gleðigangan hefst stundvíslega kl. 14:00 hjá Hallgrímskirkju. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn.

Strætó tekur þátt í Gleðigöngunni í ár eins og fyrri ár.