Fréttir
10. ágúst 2023

Akstur Strætó í kringum Gleðigönguna

Hátíðarhöld í kringum Gleðigönguna munu hafa áhrif á strætóleiðir sem aka um Lækjargötu og Fríkirkjuveg á laugardaginn 12. ágúst milli kl. 10:00-18:00.


Eftirfarandi hjáleiðir verða í gildi:

  • Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu aka hjáleið um Snorrabraut og Gömlu Hringbraut að HÍ og til og frá Hlemmi.
  • Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Snorrabraut þegar hjáleið er ekin.
  • Leið 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Háskóli Íslands þegar hjáleið er ekin.

Gleðigangan

Gleðigangan hefst stundvíslega kl. 14:00 hjá Hallgrímskirkju. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn.

Strætó tekur þátt í Gleðigöngunni í ár eins og fyrri ár.