Hér fyrir má sjá upplýsingar um akstur og opnunartíma Strætó ásamt hjáleiðum vegna gatnalokana á sumardaginn fyrsta 2025.


  • Höfuðborgarsvæðið
    • Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun.

 

  • Landsbyggðin
    • Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.
    • Leið 94 mun aka skv. fimmtudagsáætlun. Aðrar leiðir á Austfjörðum munu ekki aka þennan dag.

 

Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur.

 


Móttaka Strætó verður lokuð á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.


Miðbær Reykjavíkur

Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30

  • Leið 1 – Í stað þess að aka Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Sæbraut, Snorrabraut og Hringbraut til og frá HÍ og Skúlagötu.
  • Leið 3 – Í stað þess að aka Geirsgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun hún aka Ánanaust og Hringbraut.
  • Leið 6 – Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Hringbraut til og frá HÍ.
  • Leið 5 –  Í stað þess að aka um Egilsgötu, Barónsstíg, Gömlu Hringbraut og Vatnsmýrarveg mun leiðin fara hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut.
  • Leið 5 í Árbæ (frá kl. 12:00-13:00) – Í stað þess að aka um Hraunbæ og Rofabæ mun leiðin fara hjáleið um Bæjarháls og Bæjarbraut. Lokaðar biðstöðvar eru: Hraunbær, Fagribær og Hábær.
  • Leið 11 –  Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu og Suðurgötu mun leiðin aka um Hringbraut.
  • Leið 12 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu, Lækjargötu og Skothúsveg mun leiðin aka  Snorrabraut og Hringbraut.
  • Leið 13 – Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Vonarstræti og Túngötu mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut.
  • Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu og Geirsgötu mun leiðin aka Snorrabraut, Hringbraut og Ánanaust í átt að Verzló. Í áttina að Granda mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut í stað þess að aka Hverfisgötu.
  • Leið 15 – Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu mun leiðin aka hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut.

Lokaðar biðstöðvar verða:

  • Mýrargata (opin í átt að Granda fyrir leið 14)
  • Snorrabraut
  • Skeggjagata
  • Laugavegur
  • Barónsstígur
  • Bíó Paradís
  • Þjóðleikhúsið
  • Harpa
  • Lækjartorg A
  • Lækjartorg B
  • Lækjartorg C
  • MR
  • Hallargarðurinn
  • Ráðhúsið
  • Háskóli Íslands B
  • Heilsuverndarstöðin
  • Sjúkrahótel
  • Gamla Hringbraut
  • Landakot
  • Ásvallagata

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður milli kl. 13:15 – 13:45

  • Leið 19 – í stað þess að aka Vesturgötu og Hjallabraut mun leiðin aka Reykjavíkurveg.

Lokaðar biðstöðvar verða:

  • Norðurbakki
  • Sundhöll Hafnarfjarðar
  • Skjólvangur
  • Víðivangur
  • Miðvangur
  • Hjallabraut

Mosfellsbær

Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:30

  • Leið 15 – leiðin mun snúa við á hringtorginu við Skólabraut og aka Skólabraut, Háholt, Bjarkarholt og Langatanga.

Lokaðar biðstöðvar verða:

  • Skeiðholt
  • Álfatangi