Hér fyrir má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó á sumardaginn fyrsta 2024.
- Höfuðborgarsvæðið
- Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun.
- Landsbyggðin
- Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.
- Leið 94 ekur skv. mánudagsáætlun.
- Leiðir 91 og 93 munu ekki aka þennan dag.
Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur.
Móttaka Strætó verður lokuð á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.
Miðbær Reykjavíkur
Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30
- Leiðir 1, 3 og 6 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu munu leiðirnar aka hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut til og frá Hlemmi.
- Leiðir 11 og 12 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi.
- Leið 13 – Í stað þess að aka um Hofsvallagötu, Túngötu, Vonarstræti, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi.
- Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut á leið til og frá Hlemmi.
- Leið 15 – Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu til og frá Hlemmi mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut til og frá Hlemmi.
Lokaðar biðstöðvar verða:
- Barónsstígur
- Bíó Paradís
- Þjóðleikhúsið
- Lækjartorg A
- Lækjartorg B
- Lækjartorg C
- MR
- Hallargarðurinn
- Ráðhúsið
- Heilsuverndarstöðin
- Sjúkrahótel
- Gamla Hringbraut
- Landakot
- Ásvallagata
Mosfellsbær
Mosfellsbæ milli kl. 12:45 og 13:30
- Leið 15 – leiðin mun snúa við á hringtorginu við Skólabraut og aka Skólabraut, Háholt, Bjarkarholt og Langatanga.
Lokaðar biðstöðvar verða:
- Skeiðholt
- Álfatangi