Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó á sumardaginn fyrsta 2023.


  • Höfuðborgarsvæðið
    • Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun.

 

  • Landsbyggðin
    • Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.
    • Leið 94 ekur skv. fimmtudagsáætlun.

 

Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur.

 


Móttaka Strætó verður lokað á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.


Miðbær Reykjavíkur

Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30

  • Leiðir 1, 3 og 6 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu munu leiðirnar aka hjáleið um Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu og Sæbraut á leið til og frá Hlemmi.
  • Leiðir 11 og 12 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi.
  • Leið 13 – Í stað þess að aka um Hofsvallagötu, Túngötu, Vonarstræti, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi.
  • Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut á leið til og frá Hlemmi.
  • Leið 15 – Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu að Hlemmi mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið að Hlemmi. Frá Hlemmi fer leiðin hjáleið um Hringbraut en það hefur engin áhrif á biðstöðvar.

Lokaðar biðstöðvar verða:

  • Barónsstígur
  • Bíó Paradís
  • Þjóðleikhúsið
  • Lækjartorg A
  • Lækjartorg B
  • Lækjartorg C
  • MR
  • Hallargarðurinn
  • Ráðhúsið
  • Heilsuverndarstöðin
  • Sjúkrahótel
  • Gamla Hringbraut
  • Þjóðminjasafnið
  • Landakot
  • Ásvallagata

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður milli kl. 13:45 og 14:00

  • Leið 19 – Ein ferð á leið 19 mun ekki geta ekið um Hjallabraut á leið sinni í átt að Kaplakrika. Í staðinn mun leiðin aka hjáleið um Reykjavíkurveg.

Lokaðar biðstöðvar verða:

  • Hjallabraut
  • Miðvangur
  • Víðivangur
  • Skjólvangur
  • Sundhöll Hafnarfjarðar
  • Norðurbakki

Mosfellsbær

Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:30

  • Leið 7 – Leiðin mun ekki aka til og frá Leirvogstungu á meðan á lokun stendur.
  • Leið 15 – Í stað þess að aka um Skeiðholt, Skólabraut og Háholt mun leiðin aka hjáleið um Langatanga og Vesturlandsveg á leið sinni til og frá Reykjaveg.

Lokaðar biðstöðvar verða:

  • Skeiðholt
  • Varmárskóli
  • Háholt
  • Tungubakkar
  • Laxatunga