Hér er staðan hjá Strætó á landsbyggðinni:
Suðurland
- Hellisheiðin er lokuð og því eru leiðir 51 og 52 ekki byrjaðar að aka.
- Stefnt er að því að leiðir 71, 72 og 73 fari að aka skv. áætlun eftir hádegi í dag.
Vesturland
- Leið 57 er farin að aka skv. áætlun á milli Reykjavíkur og Borgarness. Ekki verður ekið milli Akureyrar og Borgarness í dag.
- Stefnt er að því að leiðir 58 og 82 á Snæfellsnesi og leið 81 í Borgarbyggð aki skv. áætlun síðar í dag.
Suðurnes
- Allar leiðir á Suðurnesjum eru farnar að aka skv. áætlun.
Norður- og Norðausturland
- Leið 78 milli Akureyrar og Siglufjarðar verður ekkert ekin í dag.
- Leið 56 milli Akureyrar og Egilsstaða verður ekki ekin í dag.
- Óvissa er með 17:30 ferðina á leið 79 milli Húsavíkur og Akureyrar