Frítt verður í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó sunnudaginn 22. september nk.


Bíllausi dagurinn, er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem hófst 16. september síðastliðinn, en 22. september nk. verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó yfir daginn og er fólk hvatt til að hvíla bílinn og nota fjölbreytta og vistvæna ferðamáta.

Þetta er frábært tækifæri til að prófa aðra ferðamáta – taka Strætó, hjóla eða ganga.

Ath. það er ekki frítt í næturstrætó aðfaranótt sunnudags.