Fréttir
22. feb. 2022

Aðgengi fyrir hjólastólanotendur á landsbyggðinni

Frá og með miðvikudeginum 23. febrúar verður hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á leiðum 51 og 57 á landsbyggðinni. Um er að ræða verkefni í þróun hjá Strætó og Vegagerðinni.


Eins og staðan er núna þá geta hjólastólanotendur eingöngu notað ákveðnar biðstöðvar og pantað ferðir á ákveðnum tímum.

Leið 51 Mjódd - Selfoss

Vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 5402700 minnsta kosti einum sólarhring fyrir áætlaða brottför.

Athugið: Eingöngu er hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á eftirfarandi ferðum:

 

Virkir dagar:

  • 08:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar
  • 13:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar
  • 10:00 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1
  • 15:00 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1

 

Laugardagar og sunnudagar:

  • 08:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar
  • 14:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar
  • 13:15 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1
  • 17:30 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1

 

Það er aðeins pláss fyrir einn hjólastól í vagninum í einu.

Aðeins er aðgengi fyrir hjólastólanotendur á biðstöðvunum Mjódd, Hveragerði og Selfoss-N1.


Leið 57 Mjódd - Akureyri

Vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 5402700 minnsta kosti einum sólarhring fyrir áætlaða brottför.

Athugið: Eingöngu er hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á eftirfarandi ferðum:

Alla daga:

  • 09:00 ferð frá Mjódd til Akureyrar-Hof*
  • 16:20 ferð frá Akureyri-Hof til Mjóddar*

Það er aðeins pláss fyrir einn hjólastól í vagninum í einu.

Aðeins er aðgengi fyrir hjólastólanotendur á biðstöðvunum Mjódd, Akratorg, Borgarnes, Staðarskáli, Blönduós, Sauðárkrókur og Akureyri – Hof

 

*Á fimmtudögum er aðeins ekið milli Mjóddar og Borgarness