Fréttir
24. ágúst 2023

Næturstrætó hefur aftur akstur til Mosfellsbæjar

Helgina 25. – 27.ágúst 2023 mun næturstrætó hefja akstur til Mosfellsbæjar á leið 106.

Mosfellsbær gerði samning við Strætó um þessa þjónustu fyrir íbúa Mosfellsbæjar og greiðir allan kostnað við aksturinn innan sveitarfélagsins. Fargjald í næturstrætó er tvöfalt almennt fargjald en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín.

Leið 106 hefur hingað til endað akstur sinn í Grafarvogi á næturnar en mun nú halda inn í Mosfellsbæ og enda leið sína þar. Brottfarartímar breytast því og fer vagninn nú af stað frá Lækjartorgi B kl. 1:30, 2:35 og 3:40.