Fréttir
25. feb. 2026

Breytingar á tímatöflum á landsbyggðinni 1. mars 2026

Lítilsháttar breytingar verða á tímatöflum leiða 52 og 53 á Suðurlandi og 50, 57 og 84 á Vestur- og Norðurlandi.


Breytingar taka gildi sunnudaginn 1. mars. Um er að ræða minni háttar breytingar á brottfarartímum en fjöldi ferða helst óbreyttur.

Leiðir 52 og 53

  • Tímatöflur á leiðum 52 og 53 (Suðurland) munu breytast á meðan 51 verður óbreytt.

Leiðir 50, 57 og 84

  • Tímatöflur á leiðum 50 og 57 (Vestur- og Norðurland) munu breytast.
  • Tímatafla leiðar 84 (Vestur- og Norðurland) mun breytast til að passa við leið 57.

 

Leiðarvísirinn hefur verið uppfærður þannig að viðskiptavinir geta séð réttar ferðir 1. mars og síðar.