Strætó hefur tekið þá ákvörðun að hætta akstri næturstrætó um helgar frá og með 16. október 2022. Um er að ræða leiðir 101, 102, 103, 104, 105, 106 og 107.

Stjórn Strætó samþykkti þann 4. júlí sl. að hefja akstur næturstrætó um helgar til reynslu út septembermánuð. Nú að loknum reynslutíma er ljóst að væntingar um farþegafjölda í næturstrætó hafa ekki staðist þrátt fyrir að búist hafi verið við auknum fjölda nú í haust þegar starfsfólk kom úr sumarleyfum og skólar hófust á ný. Farþegafjöldi hverrar helgar var um 300 til 340 farþegar, að meðaltali 14 til 16 í hverri ferð, sem er talsvert undir ásættanlegum viðmiðum.

Í ljósi þessa og fjárhagsstöðu Strætó, samþykkti stjórn Strætó að ekki sé réttlætanlegt að halda áfram akstri næturstrætó um helgar nú að loknum reynslutíma og verður því þeirri þjónustu hætt.