Strætó hefur ýtt úr vör tilraunaverkefni til þess að auka þjónustu á leið 25 á virkum dögum. Leiðin er með þjónustu á milli Spangar og Gufuness


Markmið verkefnisins er  að kanna hvort unnt sé að auka nýtingu bíla frá akstursþjónustunni Pant, þá sérstaklega utan annatíma.

Frá og með 1. júlí verður leiðin með 30 mínútna tíðni á virkum dögum, en í dag er leiðin með um 60-120 mínútna tíðni.

Hringt í Strætó í stað Hreyfils

Leiðin verður áfram í pöntunarþjónustu en í stað þess að hringja í Hreyfil, þá eru ferðirnar pantaðar í gegnum símanúmerið 540 2740 hjá Strætó. Áfram er nauðsynlegt að panta ferðir minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu

Bíll frá akstursþjónustunni Pant eða Hreyfli verður sendur á biðstöð viðskiptavinarins.  Sérstaklega þarf að taka fram í síma ef viðskiptavinur notar hjólastól eða er með barnavagn. Í þeim tilvikum mun Strætó útvega bíl frá akstursþjónustunni Pant í stað Hreyfils.

Í pöntunarþjónustu er fargjaldið greitt með því að sýna bílstjóra Klapp kort, Klapp tíu eða virkjaðan miða í Klapp appinu.

Þessi breyting tekur gildi 1. júlí.

Tímatafla leiðarinnar mun líta svona út: